KA sterkara á lokakaflanum gegn Selfossi
HSB PHOTO

KA vann sex marka sigur á Selfossi, 36-30, í Olís-deild karla í kvöld. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og munaði aðeins einu marki á liðunum í leikhléi, 15-14 fyrir KA. Gestirnir náðu hins vegar yfirhöndinni í síðari hálfleik og tryggðu sér sigur með sterkum lokakafla.

KA byrjaði leikinn betur og komst í 5-2 eftir rúmlega fimm mínútna leik. Selfyssingar unnu sig aftur inn í leikinn og jöfnuðu metin í 8-8 þegar rúmar 13 mínútur voru liðnar.

Liðin skiptust síðan á að hafa forystuna og var staðan jöfn, 12-12, þegar um 25 mínútur voru liðnar. KA náði tveggja marka forskoti, 14-12, en Selfoss minnkaði muninn og staðan var 15-14 fyrir gestina í hálfleik.

KA byrjaði síðari hálfleikinn betur og náði þriggja marka forskoti, 19-16. Selfyssingar héldu þó í við gestina og náðu að jafna metin í 26-26 þegar rúmar 47 mínútur voru liðnar.

Jafnræðið hélt áfram og var staðan 29-29 þegar rúmar 53 mínútur voru liðnar. KA reyndist hins vegar sterkara á lokakaflanum og skoraði sjö af síðustu átta mörkum leiksins. Gestirnir fögnuðu því að lokum sex marka sigri, 36-30.

Ragnar Hilmarsson var markahæstur Selfoss með átta mörk og Hannes Höskuldsson skoraði fimm. Hákon Garri Gestsson, Tryggvi Sigurberg Traustason og Þorleifur Tryggvi Ólafsson skoruðu fjögur mörk hver.

Hjá KA var Bjarni Ófeigur Valdimarsson markahæstur með átta mörk. Andri Freyr Friðriksson, Dagur Gautason, Einar Birgir Stefánsson og Morten Linder skoruðu fimm mörk hver.

Alexander Hrafnkelsson varði sjö skot í marki Selfoss. Hjá KA varði Bruno Bernat tólf skot og Ágúst Elí Björgvinsson sjö.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top