Haukar hafa farið á kostum í Olís-deild karla á tímabilinu og eru enn með fullt hús stiga eftir fyrstu tíu umferðirnar. Hafnarfjarðarliðið hefur unnið alla tíu leiki sína og hefur þar með slegið 25 ára gamalt félagsmet yfir bestu byrjun liðsins í efstu deild karla á þessari öld. Fyrir tímabilið í ár höfðu Haukar síðast byrjað jafn vel í efstu deild tímabilið 2000/2001 þegar liðið vann fyrstu níu leiki sína í þáverandi Nissan-deild karla. Sá árangur hafði staðið óhaggaður í aldarfjórðung en nú hafa lærisveinar Hauka gert enn betur. Handkastið fjallaði um möguleika Hauka á að jafna metið þann 31. október síðastliðinn en þá áttu Haukar möguleika á að vinna sinn níunda leik í röð frá upphafi tímabils. Nú, tæpum tveimur vikum síðar, hafa Haukar ekki aðeins jafnað árangurinn heldur farið fram úr honum. Haukar eru því með 20 stig af 20 mögulegum eftir fyrstu tíu umferðirnar og hafa lagt grunninn að afar áhugaverðu tímabili. Það er þó athyglisvert að þrátt fyrir frábæra byrjun Hauka tímabilið 2000/2001 tókst liðinu ekki að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. KA varð deildarmeistari það tímabil en Haukar enduðu í öðru sæti eftir að hafa aðeins unnið sex af síðustu þrettán leikjum sínum í deildarkeppninni. Nú, 25 árum síðar, hafa Haukar skrifað nýjan kafla í sögu félagsins með því að vinna tíu fyrstu leiki sína í deildinni. Það verður því áhugavert að fylgjast með hversu lengi sigurganga liðsins heldur áfram og hvort Hafnfirðingum takist að fylgja þessari sögulegu byrjun eftir með titli í vor. Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um gengi Hauka og því velt upp hvort Haukar myndu fara taplausir í gegnum leikina sem þeir eiga eftir í Olís-deild karla fyrir áramót en liðið á meðal annars eftir að mæta FH og Val í desember.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.