Simen Lyse (Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP)
Simen Lyse hefur verið kynntur sem leikmaður franska stórliðsins, PSG frá og með næsta sumri. PSG tilkynnti fréttirnar á heimasíðu sinni nú rétt í þessu. Simen Lyse sem leikur með Kolstad í Noregi og norska landsliðinu var orðaður við PSG á dögunum og nú hefur það verið gefið út að hann gangi í raðir franska félagsins næsta sumar. Samningur Lyse og PSG er til ársins 2029. Umboðsmaður Simen Lyse er Íslendingurinn, Arnar Freyr Theodórsson. Simen Lyse er fæddur árið 2000 og hefur verið í norska landsliðinu undanfarin ár. Þar hefur hann spilað 36 landsleiki og skorað 111 mörk. Lyse er lykilmaður í liði Kolstad sem hefur ekki náð að stíga það skref sem félag sem margir héldu fyrir nokkrum árum þegar félagið sótti til sín reynslu mikla leikmenn á borð við Sigvalda Björn Guðjónsson, Janus Daða Smárason, Sander Sagosen, Torbjörn Bergerud, Magnus Gullerud og fleiri leikmenn. Það verður athyglisvert að fylgjast með Lyse á nýjum slóðum á næsta tímabili og eins verður fróðlegt að sjá hvernig Kolstad ætlar að fylla það skarð sem Norðmaðurinn skilur eftir sig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.