Einar Þorsteinn snýr til baka um helgina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Landsliðsmaðurinn, Einar Þorsteinn Ólafsson leikmaður Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni snýr til baka á völlinn um helgina eftir meiðsli sem hann hefur glímt við síðustu vikur. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Einar Þorsteinn meiddist í leik gegn Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni fyrir mánuði síðan og hefur misst af fjórum síðustu leikjum liðsins. Hann var meðal annars fjarverandi er Hamburg varð fyrsta liðið til að tapa gegn Leipzig á tímabilinu í síðasta leik.

Nú horfir hinsvegar til bjartari tíma hjá landsliðsmanninum sem snýr til baka á sunnudaginn er liðið fær Minden í heimsókn.

Hamburg er í 9.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 15 stig en Mindsen er í 16.sætinu með 9 stig, fjórum stigum frá falli.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top