HM í dag – Ljóst hvaða þjóðir leika til úrslita
JOHN THYS / AFP)

Undanúrslitin á heimsmeistaramóti kvenna voru leikin í Rotterdam í Hollandi í dag. Fyrirfram var gert ráð fyrir öruggum sigrum Frakklands og Noregs og gert ráð fyrir að endurtekning yrði frá úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu fyrir tveimur árum þegar Frakkland hafði betur gegn Noregi.

Annað kom þó á daginn því Þjóðverjar gerðu sér lítið fyrir og unnu franska liðið sem einhverjir vildu meina að hafi tapað viljandi gegn Hollandi í milliriðlinum til að komast hjá því að mæta Noregi í undanúrslitum. Noregur vann Holland í seinni undanúrslitaleiknum með tíu mörkum, 35-25.

Þýskaland hafði undirtökin í leiknum allt frá því í stöðunni 4-4 og náðu mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik 10-6. Antje Döll fór mikið í markaskorun Þýskalands í leiknum og skoraði fimm af níu mörkum sínum í fyrri hálfleik. 

Frakkland náði aldrei að brúa bilið sem Þjóðverjar bjuggu til í fyrri hálfleik. Þýskaland sigldi sigrinum sannfærandi í höfn og vann að lokum sex marka sigur 29-23. Emily Bölk og Viola Leuchter voru næst markahæstar þýska liðsins með fimm mörk hvor. Lenda Grandveau og Sarah Bouktit voru markahæstar í liði Frakklands með fimm mörk hvor. 

Katharina Filter varði ellefu skot í marki Þýskalands og var með 32% markvörslu.

Í seinni undanúrslitaleiknum hafði Noregur betur 35-25 eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik 18-14. Frábær stemning var í höllinni og voru heimakonur í Hollandi vel studdar af sínum áhorfendum allan leikinn, það dugði þó ekki til. 

Henny Reistad fór mikinn í leiknum og skoraði sjö af 18 mörkum Noregs í fyrri hálfleik en Henny Reistad skoraði alls tíu mörk í leiknum og var markahæst. Estavana Polman og Dione Housheer voru markahæstar í liði Hollands með sex mörk hvor.

Noregur hafði mikla yfirburði í leiknum og voru þær hollensku aldrei líklegar að valda einum né neinum usla í leiknum.

Úrslitaleikur Þýskalands og Noregs fer fram á sunnudaginn en fyrr um daginn mætast Frakkland og Holland. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top