
Thomas Arnoldsen (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
Thomas Arnoldsen kom inn í landsliðshóp Danmerkur seint í Evrópumótinu vegna meiðsla sem hann hlaut í leik með Álaborg í Meistaradeildinni fyrir áramót. Í fyrstu var ekki gert ráð fyrir því að Arnoldsen gæti leikið með Dönum á mótinu vegna meiðsla en annað kom á daginn. Arnoldsen átti mikinn þátt í sigri Dana gegn Íslandi í undanúrslitum mótsins og átti síðan frábæran leik í úrslitaleiknum sem tryggði Dönum Evrópumeistaratitilinn eftir 14 ára bið. Arnoldsen fer því í hóp leikmanna danska landsliðsins sem hafa unnið Evrópu, -heims og ólympíumeistaratitilinn með liðinu. En þá er hinsvegar einungis hálf sagan sögð því sigurhlutfall Arnoldsen með danska landsliðinu er með ólíkindum og nánast ótrúverðug. Hann hefur nefnilega ekki enn tapað leik með danska landsliðinu í öllum 32 leikjunum sem hann hefur leikið með landsliðinu. ,,Það er svolítið klikkað að hugsa til þess að ég hafi ekki enn tapað. Ég hef nú gert jafntefli við Noreg," sagði Arnoldsen við Hbold. Réttilega benti Arnoldsen á jafntefli gegn Noregi, sem er eini landsleikurinn sem hann hefur ekki unnið. Í leikjunum 32 hefur nefnilega 31 unnist og einn endað með jafntefli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.