Viktor Gísli Hallgrímsson (Javier Borrego / Spain DPPI / AFP)
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barcelona urðu í dag bikarmeistarar á Spáni eftir sigur á Atlético Valladolid, 24-32. Barcelona leiddu í hálfleik 12-16 og var sigurinn aldrei í hættu hjá þeim en Barcelona léku án fyrirliða síns Dika Mem sem varð fyrir meiðslum í undanúrslitaleiknum í gær. Barcelona tryggði sér sæti í úrslitum í gær með 37-31 sigri á Bidasoa Irun í gær. Viktor Gísli var frábær í leiknum í dag og varði 17 skot eða 41% markvörslu. Luis Diogo Da Souse Farde var markahæstur Barcelona í dag með 8 mörk en Domen Makuc var næstur með 5 mörk. Hjá Atlético Valladolid voru Jorge Serrano Villalobos og Jose Guilherme De Toledo markahæstir með 4 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.