Guðjón Valur Sigurðsson ((Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)
Þýska úrvalsdeildin fór aftur af stað eftir Evrópumótið í kvöld með fimm leikjum. Ýmir Örn Gíslason var í leikmannahóp Göppingen sem fengu Minden í heimsókn. Ýmir Örn skoraði eitt mark í 28-28 jafntefli liðanna í kvöld. Minden jafnaði leikinn þegar leikklukkan rann út og því svekkjandi niðurstaða fyrir Göppingen. Alexander Weck var markahæstur fyrir Minden með 6 mörk en hjá Göppingen voru þrír leikmenn markahæstir með fimm hver. Hamburg fengu Leipzig í heimsókn til sín og þurftu að sætta sig við tveggja marka tap. Einar Þorsteinn Ólafsson var í leikmannahóp Hamburg í kvöld en tókst ekki að skora. Blær Hinriksson skoraði 2 mörk fyrir Leipzig sem unnu lífsnauðsynlegan sigur en sitja samt sem áður í botnsæti deildarinnar með 7 stig. Hamburg sigla lygnan sjó um miðja deild með 17 stig. Stuttgart unnu tveggja marka sigur á Eisenach, 33-31 á heimavelli. Kai Hafner var markahæstur í liði Stuttgart með 7 mörk en hjá Eisenach skoraði Stephan Seitz 6 mörk. Bæði lið eru með 13 stig eftir leiki kvöldsins. Erlangen tóku á móti Hannover-Burgdorf og voru Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson á sínum stað í Erlangen. Hannover-Burgdorf höfðu betur í 29-30 sigri en sigurmarkið kom þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum. Viggó skoraði 5 mörk í kvöld og Andri Már skoraði 1. Erlangen er í 12.sæti deildinnar og Hannover í því níunda. Lokaleikur dagsins var af stærri gerðinni þegar Gummersbach tóku á móti Flensburg. Það er skemmst frá því að segja að Guðjón Valur og lærisveinar hans í Gummersbach rúlluðu yfir Flensburg, 33-26. Elliði Snær Viðarsson var markahæstur í kvöld með 8 mörk en hjá Flensburg var Emil Jakobesen markahæstur með 6 mörk. Gummersbach er í 6.sæti deildarinnar en Flensburg sitja í 2.sæti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.