Gidsel og Reistad þau bestu í heimi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mathias Gidsel (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF tilkynnti í dag að danski landsliðsmaðurinn, Mathias Gidsel hafi verið kjörinn besti handknattleiksmaður heims árið 2025. Þá var hin norska Henny Reistad kjörin besta handknattleikskona heims árið 2025.

Er þetta þriðja árið í röð sem Gidsel og Reistad hljóta nafnbótina. Engum leikmanni hvorki í karla eða kvennaflokki hafði áður tekist að vinna til verðlaunanna þrjú ár í röð.

Portúgalinn Francisco Costa var kjörinn besti ungi handknattleiksmaður heims árið 2025. Francisco Cota er einnig að brjóta blað í sögunni en hann er fyrsti Portúgalinn sem hlotnast þessi heiður að vera kjörinn besti ungi handknattleiksmaður heims.

Hin þýska Viola Leuchter var þá kjörin besta unga handknattleikskona heims árið 2025. Er þetta í fyrsta sinn sem hún vinnur til verðlaunanna. Viola Leuchter sem er fædd árið 2004 gekk í raðir Odense í Danmörku í sumar eftir að lið hennar í Þýskalandi, Ludwigsburg fór á hausinn.

JOHN THYS / AFP)
Norway's centre back #25 Henny Ella Reistad (C) celebrates after scoring during the IHF Women's Handball World Championship semi final match between the Netherlands and Norway in the Rotterdam Ahoy Arena, Rotterdam, on December 12, 2025. (Photo by JOHN THYS / AFP)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top