Stiven og Óðinn markahæstir í sigrum
Beautiful Sports / Orange Pictures / AFP

Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni í Evrópuboltanum í dag og ætlum við að stikla á því helst sem gerðist í dag.

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barcelona unnu Atletico Valladolid á útivelli í dag 28-39. Staðan var 17-21 Barcelona í vil í hálfleik.

Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar hans í Benfica unnu CS Maritimo með tíu marka mun á heimavelli í dag, 40-30. Stiven var markahæstur hjá liði Benfica með 8 mörk.

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 3 mörk í 33-28 tapi Alpla Hard gegn toppliði Ferlach í austurrísku úrvalsdeildinni í dag. Tryggvi Garðar Jónsson var ekki í leikmannahóp Alpla í dag en Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið en gaf út á dögunum að hann hætti með þá í vor.

Janus Daði Smárason var ekki í leikmannahóp Pick Szeged í ungversku úrvalsdeildinni í dag þegar þeir unnu, 39-25, sigur á Budai Farkasok-Rév.

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 8 mörk og var markahæstur fyrir Kadetten Schaffhausen í, 33-30, sigri á Amicita Zurich í svissneksu úrvalsdeildinni. Kadetten eru langefstir í deildinni með 42 stig eftir 22 umferðir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top