Fyrsta tapið í tíu leikjum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elmar Erlingsson (Nordhorn Lingen)

Lygileg sigurganga Nordhorn-Lingen lauk í dag þegar liðið tapaði með sjö mörkum gegn Eintracht Hagen í þýsku B-deildinni, 21-28.

Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum en Nordhorn-Lingen voru yfir 5-4 í leiknum en síðan ekki söguna meir í fyrri hálfleik. Eintracht Hagen voru 14-12 yfir í hálfleik en Hákon Daði Styrmisson sem gekk í raðir ÍBV um áramótin lék með Hagen fyrir áramót.

Elmar og félagar jöfnuðu metin og komust aftur yfir í stöðunni 15-14 en þá kom slæmur kafli hjá liðinu. Hagen skoruðu níu mörk gegn tveimur mörkum Nordhorn og breyttu stöðunni í 17-23. Lokatölur urðu síðan 21-28 eins og fyrr segir.

Þrátt fyrir tapið er Nordhorn einu sæti fyrir ofan Hagen í deildinni. Nordhorn er í 5. sæti með 27 stig en Hagen í sjötta sæti með 25 stig.

Bietigheim er á toppi deildarinnar með 32 stig og Balingen eru í 2.sætinu með 28 stig, jafn mörg stig og Elbflorenz og Potsdam.

Nordhorn heimsækir Dormagen í næstu umferð en Dormagen eru í 15.sætinu með 12 stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top