Orri Freyr Þorkelsson (Julien Kammerer / DPPI via AFP)
11.umferðin í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lauk í gær með fjórum leikjum. Wisla Plock vann Veszprém á heimavelli 36-35 en á sama tíma vann Fuchse Berlín sex marka sigur á Dinamo Bucuresti í Rúmeníu. Tapið hjá Veszprém þýðir að bæði Fuchse Berlín og Álaborg hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar þrátt fyrir að enn eru þrjár umferðir eftir af riðlakeppninni. Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk í tapinu í Póllandi. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sjö mörk fyrir Sporting sem tapaði með ellefu mörkum gegn Nantes í Frakklandi. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Dinamo București - Fuchse Berlín 21-27 Kielce - Veszprém 36-35 Nantes - Sporting 38-27 Eurofarm Pelister - Wisla Plock 25-28

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.