Tumi Steinn Rúnarsson (Harald Dostal / APA-PictureDesk / AFP)
Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk í þriggja marka sigri Alpla Hard á Krems í austurrísku úrvalsdeildinni í kvöld. Alpla Hard vann leikinn með þremur mörkum 35-32 eftir að hafa verið 17-16 yfir í hálfleik. Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað en var hinsvegar þrívegis vikið af velli og endaði með að fá rautt spjald undir lok leiks. Alpla Hard fer upp í 3.sæti deildarinnar með sigrinum en þjálfari liðsins er Hannes Jón Jónsson sem hættir með liðið eftir tímabilið. Tjörvi Týr Gíslason skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi Oppenweiler/Backnang í þýsku B-deildinni í kvöld en liðið tapaði gegn Essen á heimavelli 26-29. Tjörvi nýtti bæði skot sín í leiknum en Oppenweiler/Backnang er enn í leit af sínum fyrsta sigri eftir 20 umferðir í þýsku B-deildinni, liðið er nýliði í deildinni en Tjörvi gekk í raðir félagsins frá Bergischer í sumar. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Barcelona unnu 14 marka sigur á Villa de Aranda í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld á heimavelli 41-27. Barcelona var 23-12 yfir í hálfleik en Villa de Aranda er í 12.sæti af 16 liðum í deildinni með 11 stig eftir 18 leiki. Sveinn Jóhannsson og félagar í Chambery í frönsku úrvalsdeildinni gerðu síðan 30-30 jafntefli á útivelli gegn Toulouse eftir að hafa verið 16-19 yfir í hálfleik. Chambery náðu mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik en Toulouse reyndust sterkari aðilinn undir lok leiks og það voru Chambery sem skoruðu síðasta mark leiksins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.