Gísli Þorgeir Kristjánsson - Simon Hald (Jonathan Nackstrand / AFP)
Danski landsliðsmaðurinn, Simon Hald hefur enn ekki leikið handbolta eftir Evrópumótið en hann missti af úrslitaleik Dana og Þjóðverja vegna óreglulegan hjartsláttar eftir sjúkrahús heimsókn hans í kjölfar leiks Íslands og Danmerkur í undanúrslitum keppninnar. Simon Hald fékk höfuðhögg í fyrri hálfleik í leiknum gegn Íslandi og var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. En nú bendir allt til þess að Simon Hald sem leikur með dönsku meisturunum í Álaborg geti snúið aftur til leiks mjög fljótlega. ,,Ég þarf enn að vera á blóðþynningarlyfjum um tíma. Ég hef ekki fundið fyrir neinu en við höfum fylgt leiðbeiningunum sem læknarnir gáfu mér. Miðað við það þá á ég viku eftir áður en ég get snúið aftur á völlinn," sagði Simon Hald við TV 2 Sport. ,,Við gerum ráð fyrir því að ég geti spilað gegn HØJ eftir góða viku," sagði Simon Hald að lokum. Þar með er ljóst að Hald verður ekki í leikmannahópi Álaborgar í Meistaradeildinni á fimmtudaginn er liðið heimsækir Sporting.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.