Kritian Bjornsen (Julien Kammerer / DPPI via AFP)
Norski hornamaðurinn Kristian Bjørnsen leikmaður danska stórliðsins, Álaborgar hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Kristian Bjørnsen er fæddur árið 1989 og varð 37 ára í janúar. Kristian Bjørnsen lýkur sínu fimmta tímabili með danska liðinu í vor en hann gekk til liðs við Álaborgar sumarið 2021 frá Wetzlar í Þýskalandi en þar lék hann einnig fimm tímabil. Hægri hornamaðurinn á að baki 233 landsleiki fyrir Noreg og skorað rúmlega 750 mörk fyrir norska landsliðið. ,,Ég tel mig hafa átt langan og farsælan feril þar sem ég hef fengið að kynnast fjölmörgu áhugaverðu fólki. Ég hef átt mikið af góðum liðsfélögum og hef sömuleiðis notið þeirra forréttinda að vinna töluvert af titlum og fengið að upplifa fjölda ógleymanlegra augnablika sem munu fylgja mér ævilangt," sagði Norðmaðurinn í samtali við heimasíðu danska félagsins. Á ferlinum varð hann til að mynda sænskur meistari með IFK Kristianstad í tvígang en hann lék þar áður en hann samdi við Wetzlar. Með Álaborg hefur hann tvívegis orðið danskur meistari og þrisvar bikarmeistari.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.