Ómar Ingi Magnússon (Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)
Magdeburg verður án Ómars Inga Magnússonar í Póllandi í kvöld þegar liðið heimsækir Wisla Plock heim í 12.umferð Meistaradeildar Evrópu. Ómar Ingi ferðaðist ekki með liðinu til Póllands í gær. „Það er möguleiki að ég skilji einhvern eftir heima af persónulegum ástæðum,“ sagði þjálfari Magdeburg Bennet Wiegert í viðtali á þriðjudaginn. „En það er ekkert dramatískt, heldur eitthvað jákvætt," bætti hann við en nú er ljóst að um var að ræða landsliðsfyrirliðann Ómar Inga Magnússon. Í frétt handball-world.news er bent á að Ómar Ingi verður líklega með Magdeburg gegn MT Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Elvar Örn Jónsson er enn fjarri góðu gamni eftir að hafa handarbrotnað á Evrópumótinu í janúar og verður Gísli Þorgeir Kristjánsson því eini Íslendingurinn í leikmannahópi Magdeburg í kvöld en Magdeburg hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Magdeburg eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir sigur á Fuchse Berlín í úrslitaleiknum í Köln síðasta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.