Tumi Steinn skoraði eitt mark í óvæntu jafntefli
Harald Dostal / AFP

Íslendingaliðið í Austurríki, Alpla Hard tapaði dýrmætu stigi í toppbaráttunni þegar liðið gerði 26-26 jafntefli á heimavelli gegn HSG Graz í 16.umferð austurrísku úrvalsdeildarinnar. Um var að ræða fyrsta leik umferðarinnar.

Alpla Hard hóf leikinn betur og komst í fjögurra marka forystu í stöðunni 12-8 í fyrri hálfleik en þá kom slæmur kafli og HSG Graz komst í 14-16 áður en Alpla Hard minnkaði muninn í eitt mark fyrir hálfleik.

HSG Graz sem er í næst neðsta sæti deildarinnar með 12 stig eftir jafnteflið í kvöld byrjaði seinni hálfleikinn betur og komst fjórum mörkum yfir í stöðunni 18-22. Það leit ekki út fyrir að Alpla Hard undir stjórn Hannesar Jóns Jónssonar myndu fá eitthvað útúr þessum leik í stöðunni 23-26 þegar rúmlega fimm mínútur voru eftir af leiknum.

Alpla Hard skoruðu hinsvegar þrjú síðustu mörk leiksins og lokatölur 26-26 en Nico Sager skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði eitt mark fyrir Alpla Hard í kvöld og Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað en átti eina skot tilraun.

Alpla Hard jafnar Ferlach að stigum á toppi deildarinnar með jafnteflinu en Ferlach á leik til góða.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top