Koma Dika Mem góð auglýsing fyrir þýsku deildina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stórleikur 13.umferðar í Meistaradeild Evrópu fer fram í Magdeburg í kvöld þegar toppliðin í B-riðli Meistaradeildarinnar, Magdeburg og Barcelona mætast í GETEC höllinni.

Magdeburg er með 23 stig á toppi riðilsins en Barcelona er með 22 stig í 2.sætinu. Um er að ræða næst síðustu umferðina í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en bæði lið hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Sigur tryggir þýsku meisturunum sigurinn í riðlinum og þjálfarinn Bennet Wiegert fer ekkert í grafgötur um mikilvægi leiksins.

„Það að við getum nú tryggt okkur efsta sætið í riðlinum gegn Barcelona á næstsíðustu umferðinni er frábært. Strákarnir hafa unnið fyrir þessu og eru ósigraðir í riðlakeppninni. Nú viljum við augljóslega klára þetta og vinna riðilinn," sagði þjálfari Magdeburg, Bennet Wiegert í viðtali við Sport Bild.

Það sem gerir þennan leik enn athyglisverðari er fyrir þær sakir að um er að ræða fyrsta leik Dika Mem leikmann Barcelona í Þýskalandi eftir að hann samdi við þýsku meistarana í Fuchse Berlín frá og með sumrinu 2027. Wiegert segist vera spenntur fyrir komu Dika Mem í þýsku úrvalsdeildina og segir þetta sýna styrkleikamerki fyrir deildina sjálfa.

„Þetta er góð auglýsing fyrir deildina. Ég held að það sé frábært að nöfn eins og Dika Mem og Alex Dujshebaev séu að koma í Bundesliguna. Fyrir nokkrum árum var það óhugsandi. Sú staðreynd að þeir velji nú þá leið gerir deildina enn meira aðlaðandi.“

Barcelona hefur ekki unnið í Magdeburg síðan þeir unnu 26-24 4.desember árið 2005 en Magdeburg hafði betur í fyrri leik liðanna í Barcelona fyrr á þessu tímabili 22-21.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top