Þorsteinn Leó markahæstur í Íslendingaslag
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nokkrir af okkar færustu atvinnumönnum voru í eldlínunni um víða Evrópu í dag. Óðinn Þór Ríkharðsson var ekki meðal markaskorara í sigri Kadetten Schaffhausen gegn Pfadi Winterthur 35-30 í svissnesku úrvalsdeildinni en Kadetten voru einu marki yfir í hálfleik 20-19.

Í Austurríki vann Íslendingalið Alpla Hard góðan sigur á nágrönnum sínum í Bregenz með sömu markatölu, 35-30 en leikurinn fór fram í Bregenz.

Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard en Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard og gaf tvær stoðsendingar. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Alpla Hard í leiknum sem er á toppi deildarinnar með 21 stig tveimur stigum meira en Kerlach sem er í 2.sæti deildarinnar.

Í Portúgal voru þrjú Íslendingalið í eldlínunni en það var Íslendingaslagur í Benfica þegar Benfica og Porto mættust. Fjórum stigum munaði á liðunum fyrir leikinn en Benfica situr í 2.sæti deildarinnar á meðan Porto er í því þriðja. Engin breyting varð á stigamuninum á milli liðanna eftir leikinn því liðin gerðu jafntefli 29-29 í leik kvöldsins þar sem mikil dramatík var á loka sekúndum leiksins.

Porto var einu marki yfir í hálfleik 14-15 en Porto var meira og minna yfir allan fyrri hálfleikinn og náði mest fjögurra marka forystu. Í seinni hálfleik voru það hinsvegar Benfica sem byrjuðu af krafti og komust yfir og mest voru þeir þremur mörkum yfir í stöðunni 21-18. Loka mínútur leiksins voru hinsvegar hörku spennandi en það voru heimamenn í Benfica sem jöfnuðu metin undir blá lokin og lokatölur 29-29.

Porto var með boltann þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum en Benfica voru í maður á mann vörn. Rui Silva leikmaður Porto tók þá ákvörðun að kasta boltanum upp völlinn og von um að tefja tímann. Það fór ekki betur en svo að Benfica unnu boltann, náðu einni sendingu og skoruðu síðan jöfnunarmarkið áður en leiktíminn rann út.

Stiven Tobar Valencia skoraði tvö mörk fyrir Benfica í leiknum en Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði átta mörk og var markahæsti leikmaður leiksins. Mikita Vailupau var markahæstur í liði Benfica með sjö mörk.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði síðan tvö mörk í sex marka sigri Sporting á útivelli gegn Aguas Santas 30-36 en Sporting var sex mörkum yfir í hálfleik 14-20. Kiko Costa fór á kostum í liði Sporting og skoraði 11 mörk en Sporting er með örugga forystu á toppi deildarinnar með 63 stig. Í Portúgal færðu eitt stig fyrir að mæta til leiks.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top