Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Magdeburg tóku á móti Hannover Burgdorf í fyrsta leik dagsins. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja 17-17. Heimamenn í Magdeburg mættu mun sterkari til leiks í síðari hálfleik og unnu að lokum fimm marka sigur, 35-30. Ómar Ingi Magnússon fór á kostum í liði Magdeburg í dag og skoraði 12 mörk og gaf 3 stoðsendingar. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 5 mörk og gaf 7 stoðsendingar. Magdeburg eru á toppi deildinnar með fimm stig forskot eftir 24 umferðir. Erlangen og Minden mættust í öðrum leik dagsins en bæði lið eru í neðri helming deildarinnar. Erlangen voru ívið sterkari í fyrri hálfleik en góður lokakafli Minden sá til þess að Erlangen leiddi einungis með einu marki í hálfleik, 16-15. Erlangen náði svo góðu kafla í síðari hálfleik og vann að lokum fimm marka sigur, 36-31. Viggó Kristjánsson var stórkostlegur í liði Erlangen í dag og skoraði 16 mörk ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar og kom því að meira en helmingi marka liðsins. Andri Már Rúnarsson var einnig í liði Erlangen í dag en komst ekki á blað. Erlangen fóru upp í 17 stig með sigrinum og sitja í 13.sæti deildinnar. Melsugen heimsótti Rúnar Sigtryggsson og strákana hans í Wetzlar. Melsungen voru miklu sterkari í leiknum í dag og leiddu í hálfleik með 7 mörkum, 14-21. Þeir héldu þvi forskoti allt til leiksloka og unnu að lokum öruggan sex marka sigur, 32-38. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Melsungen i dag og Reynir Þór Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen sem sitja í 8.sæti deildinnar en Wetzler eru ennþá í botnbaráttu og eru í 18 og síðasta sæti deildinnar. Í lokaleik dagsins fengu Rhein Neckar Löwen strákana hans Arnórs Þórs Gunnarssonar í heimókn í Bergischer HC. Löwen leiddu allan leikinn í dag og voru þrem mörkum yfir í hálfleik, 14-11. Þeir héldu því forskoti svo allt til loka og unnu að lokum þriggja marka sigur, 28-25. Haukur Þrastarsson fór mikinn fyrir Rhein Neckar Löwen í dag og skoraði 10 mörk og gaf 5 stoðsendingar. Rhein Neckar Löwen sitja í 7.sæti deildinnar eftir leiki dagsins en Bergischer HC eru í 15.sæti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.