Benedikt Gunnar Óskarsson leikmaður norska félagsins, Kolstad snýr til baka á handboltavöllinn í kvöld þegar Kolstad fær Industria Kielce í heimsókn í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Kolstad er á botni A-riðils fyrir leikinn í kvöld en Kielce er í 3.sætinu og gæti með sigri tryggt sér það sæti og myndi þá mæta Pick Szeged í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Benedikt Gunnar meiddist í leik með Kolstad gegn Arendal í norsku úrvalsdeildinni í febrúar þar sem Arendal vann óvæntan eins marks sigur í Þrándheimi 30-31. Þar meiddist Benedikt Gunnar á rist í þann mund sem hann skoraði eina mark sitt í leiknum. Gert var ráð fyrir að hann yrði frá keppni í 3-4 vikur Sá tími er nú liðinn og er hann í leikmannahópi Kolstad í leiknum í kvöld ásamt Sigvalda Birni Guðjónssyni og Sigurjóni Guðmundssyni. Leikur Kolstad og Kielce hefst klukkan 17:45 í dag en fjórir leikir eru á dagskrá í Meistaradeildinni í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.