Landsliðsmennirnir, Haukur Þrastarson og Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmenn Rhein-Neckar Löwen og Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni eru stoðsendingahæstu leikmenn deildarinnar um þessar mundir. Öll lið hafa leikið 24 leiki á tímabilinu að undanskildum Gummersbach og Leipzig sem hafa einungis leikið 23 leiki á tímabilinu. Haukur Þrastarson sem gekk í raðir Rhein-Neckar Löwen fyrir tímabilið frá Dinamo Bucuresti er stoðsendingahæstur í deildinni með 125 stoðsendingar og Gísli Þorgeir Kristjánsson kemur næstur með 111 stoðsendingar. Daninn, Mathias Gidsel kemur næstur með 103 stoðsendingar. Viggó Kristjánsson leikmaður Erlangen er í 10.sæti með 67 stoðsendingar og Ómar Ingi Magnússon hefur gefið 66 stoðsendingar. Magdeburg er á toppi deildarinnar með fimm stiga forskot á Flensburg og sex stigum meira en þýsku meistarnir í Füchse Berlin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.