Íslendingar voru í eldlínunni um alla Evrópu í gær. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 7 skot og var með 33% markvörslu þegar Barcelona sigraði Bidasoa á útivelli, 27-39. Ian Barrufet var markahæstur í liði Barcelona og skoraði 7 mörk í leiknum en Barcelona eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga eftir 21 umferð. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fjögur mörk þegar lið hans Kadetten Schaffhausen tapaði nokkuð óvænt í svissneksu úrvalsdeildinni í gær gegn HC Kriens-Luzern, 33-27. Þetta tap kom þó ekki að sök þar sem Kadetten eru ennþá með níu stiga forskot á Luzern sem sitja í öðru sæti deildarinnar. Úlfar Páll Monsi Þórðarsson skoraði eitt mark í jafntefli RK Alkaloid gegn HC Ohrid, 27-27, í úrslitakeppninni í Norður Makedóníu. Alkaloid sitja í 4 sæti riðilsins og eru því í góðri stöðu til að fara í undanúrslit um meistaratitilinn í Norður Makedóníu. Að lokum var Ólafur Brim Stefánsson í eldlínunni í ítölsku deildinni með liði sínu Junior Fasano. Ólafur skoraði fimm mörk í tapi gegn Metelli, 31-24. Junior Fasano sitja í fjórða sæti deildinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.