Bikarleik í Portúgal tvívegis frestað vegna vallaraðstæðna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stiven Tobar Valencia og félagar í Benfica eru komnir í 8-liða úrslit bikarkeppninnar í Portúgals en liðið mætir þar Povoa. Maritimo, Sporting og Aguas Santas hafa nú þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar.

Stiven Tobar og félagar lentu í heldur skondnu atviki í fyrstu umferð bikarkeppninnar þegar liðið átti að leika gegn Avanca í byrjun febrúar. Stiven var spurður út í atvikið í viðtali við Handkastið á dögunum þegar Stiven var hér á landi í landsliðsverkefni með íslenska landsliðinu.

,,Þetta var mjög skrítið og ég hef aldrei lent í þessu áður. Við fórum til norður Portúgals og vorum að spila gegn liði sem heitir Avanca. Það var svo mikill raki eftir storminn sem hafði gengið yfir Portúgal að það var ekki hægt að spila á vellinum. Þetta var bara eins og skautasvell," sagði Stiven og var leiknum því frestað um tvo daga.

Liðsmenn Benfica mættu því aftur á staðinn tveimur dögum síðar en þá var aðstæður ekkert betri.

,,Síðan fórum við þangað aftur tveimur dögum seinna og það var sama staða þá og ekki hægt að spila leikinn. Þá var okkur gefinn sigurinn og við unnum leikinn 15-0 og ég skoraði 15 mörk,” sagði Stiven léttur í bragði.

,,Þegar maður hefur spilað erlendis og á mörgum stöðum í Evrópu þá kemur það manni á óvart hvað umgjörðin og gæðin hérna heima er til prýðis," sagði Stiven að lokum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top