Í kvöld mættust Hörður og Grótta í undanúrslitum umspils um að komast í Olís deildina. Leikið var á Torfnesi á Ísafirði. Í fyrri leiknum unnu Harðverjar óvæntan en sanngjarnan sigur. Búist var við hörkuleik á Ísafirði í kvöld og var það svo sannarlega raunin. Leikurinn í kvöld var ótrúleg skemmtun. Einn sá skemmtilegasti sem ofanritaður hefur séð lengi. Þvílíkur spennutryllir. Íþróttahúsið á Torfnesi á Ísafirði var troðfullt og gífurleg stemming. Grótta byrjaði betur og höfðu yfirhöndina fyrstu 10 mínúturnar. Frá 10 mínútu til 22 mínútu var leikurinn áfram mjög jafn. Nánast jafnt á öllum tölum. Harðverjar áttu svo frábæran kafla síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik var 15-10 fyrir Herði. Harðverjar héldu áfram að spila mjög vel í byrjun seinni hálfleiks og eftir 10 mínútur var staðan orðin 20-14 fyrir heimamenn. Þá tóku Gróttu menn hressilega við sér og minnkuðu muninn í 21-19 þegar rúmt korter var eftir af leiknum. Grótta komst svo yfir í stöðunni 24-25 þegar rúmar 7 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Lokakaflinn var svo æsispennandi þar sem liðin skiptust á að jafna leikinn. Antoine Óskar jafnar leikinn í 27-27 þegar rúm mínúta var eftir og náðu Harðverjar ekki að finna sigurmark. Því þurfti að framlengja leikinn. Í fyrri hálfleik framlengingarinnar voru Gróttu menn betri og leiddu eftir fyrri hálfleik 27-29. Seinni hálfleikurinn byrjaði svo á því að Sæþór Atlason kom þeim í 27-30 og útlitið orðið svart fyrir heimamenn. Harðverjar tóku þá aftur við sér og Kei Anegayama jafnaði svo metin í 31-31 þegar skammt var eftir. Antoine Óskar skoraði svo þegar 6 sekúndur voru eftir og breytti stöðunni í 31-32 þegar 6 sekúndur voru eftir. Harðverjar geystust upp en náðu ekki að skora en fengu hinsvegar fríkast þegar leiktíminn var við það að klárast. Guilherme De Andrade skoraði svo ótrúlegt jöfnunarmark úr fríkastinu og aftur þurfti að framlengja. Í seinni framlengingunni voru Harðverjar sterkari og áttu greinilega meira eftir á tanknum. Komust þeir fljótt í 37-34. Grótta náði þá frábærri rispu og Sæþór Atlason jafnaði í 38-38 þegar lítið var eftir. Harðarmenn brunuðu upp í næstu sókn Jonathan Santos skoraði frábært mark úr undirhandaskoti þegar örfáar sekúndur lifðu leiks. Stórkostlegur sigur hjá heimamönnum á Ísafirði og fara þeir glaðir inn í páskavikuna á Aldrei fór ég suður á Ísafirði með 2-0 sigur í þessu einvígi. Magnaður spennutryllir þessi leikur. Hjá Gróttu var Antoine Óskar Pantano markahæstur með 10 mörk. Hannes Pétur og Þórður vörðu samtals 10 skot. Hjá Herði var Guilherme De Andrade markahæstur með 9 mörk. Stefán Freyr Jónsson átti magnaðan leik og varði 19 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.