Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað aðstoðarþjálfari ÍBV í Olís-deild karla Sigurður Bragason hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Já, heilt yfir er ég nokkuð ánægður. Við fórum í mjög góða æfingaferð til Hollands þar sem við fengum leiki gegn sterkum liðum. Við unnum Volendam, ríkjandi Hollandsmeistara, 35–29 og Aalsmeer, sem varð í öðru sæti, 36–31. Síðan tókum við þátt í Ragnarsmótinu þar sem við töpuðum fyrir Víkingi 27–30 en unnum Selfoss 31–22 og ÍR 45–25. Úrslit æfingaleikja segja auðvitað ekki allt og maður þarf að passa sig á að lesa of mikið í þau. En við höfum séð ýmislegt í okkar leik sem lofar góðu og um leið séð hluti sem við þurfum að bæta. Við erum að slípa saman breyttan hóp og það tekur tíma, en mér finnst við vera á ágætum stað miðað við hvar við stöndum í ferlinu. Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Stóra verkefnið hefur verið að slípa saman breyttan hóp og finna að einhverju leyti nýja nálgun á okkar leik. Við höfum misst leikmenn og síðan lent í alvarlegum meiðslum sem kalla á að við hugsum ákveðna hluti upp á nýtt. Við höfum lagt áherslu á að styrkja okkar grunn, fá meiri hraða og áræðni í leikinn og gefa yngri leikmönnum bæði tækifæri og ábyrgð. Við þurfum að byggja leikinn út frá þeim leikmönnum sem við höfum í dag frekar en að reyna að búa til nákvæmlega sama lið og við vorum með áður. Síðan viljum við byggja upp lið sem er erfitt að eiga við, bæði líkamlega og andlega. Lið sem gefur ekkert eftir og berst fyrir hvern einasta bolta. Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Hún er ágæt miðað við þau áföll sem við höfum orðið fyrir. Því miður meiddist Elís Þór illa í sumar og verður frá allt tímabilið. Ívar Bessi meiddist einnig nokkuð illa og verður að öllum líkindum frá í töluverðan tíma, þó það skýrist betur á næstu dögum. Jakob er síðan enn í endurhæfingu og við eigum von á honum til baka í kringum áramót. Á móti höfum við endurheimt Jason Stefánsson eftir meiðsli og fengið Atla Stein Arnarson til okkar frá Gróttu. Síðan eru nokkrir ungir leikmenn að taka sín fyrstu alvöru skref með meistaraflokki. Þannig að staðan er kannski öðruvísi en við sáum fyrir okkur í upphafi sumars, en það þýðir lítið að velta sér upp úr því. Þetta er hópurinn okkar og verkefnið er að gera hann eins góðan og mögulegt er. Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Þær eru töluverðar. Andri Erlings fór til Svíþjóðar, Ísak Rafns og Andrés Sigurðsson lögðu skóna á hilluna, Nökkvi Óðinsson og Hinrik Hugi tóku sér frí vegna vinnu og Egill Stefánsson flutti til Reykjavíkur í nám og mun leika með Gróttu. Þá fór Hákon aftur í borgina. Síðan bætast meiðslin hjá Elís og Ívari Bessa við. Við höfum því misst bæði reynslu, gæði og ákveðin hlutverk úr liðinu. En þetta er líka eðli íþróttarinnar. Þegar einn fer opnast pláss fyrir annan. Við þurfum ekki að finna nýja útgáfu af þeim leikmönnum sem eru farnir. Við þurfum að þróa nýtt lið út frá þeim leikmönnum sem við höfum núna. Þar liggur bæði áskorunin og tækifærið. Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Stærsta áskorunin verður líklega að skapa stöðugleika með breyttum og tiltölulega ungum hópi í bland við nokkra eldri reynslumeiri. Ungir leikmenn þurfa að fá tækifæri og þeir þurfa líka að fá að gera mistök. Á sama tíma erum við í keppnisíþrótt þar sem gerðar eru kröfur um árangur. Að finna rétta jafnvægið þar er alltaf áskorun. Síðan þurfum við að bregðast við þeim meiðslum sem við höfum orðið fyrir og finna leiðir til að gera styrkleika þessa hóps að okkar leikstíl. En við ætlum ekki að nota mannabreytingar, ungan hóp eða meiðsli sem afsökun. Við erum ÍBV og eigum að gera kröfur til okkar. Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Fyrst og fremst vil ég sjá liðið þróast og verða betra eftir því sem líður á veturinn. Við viljum styrkja yngri leikmennina, koma þeim hægt og rólega inn í stærri hlutverk og um leið þróa leik liðsins. Það er mjög erfitt að spá fyrir um deildina í ár. Mörg lið hafa misst unga og efnilega leikmenn til útlanda og nokkrir eldri og reyndari leikmenn hafa hætt. Það eru því mörg lið að byggja upp nýja hópa og það gæti þýtt meiri sveiflur og jafnari deild. En við ætlum að gera kröfur til okkar. Við viljum vera lið sem enginn hefur sérstakan áhuga á að mæta og þegar líður á vorið viljum við vera komnir í þá stöðu að geta gert atlögu að stóru hlutunum. Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu? Ég er mjög spenntur fyrir því að sjá hvernig þessi hópur þróast. Það eru leikmenn sem fá nú stærri hlutverk og ungir strákar sem fá tækifæri til að stíga fram. Það er alltaf spennandi sem þjálfari að sjá hverjir grípa tækifærið þegar það kemur. Svo er ég sérstaklega spenntur fyrir heimaleikjunum. Okkur langar að gera stemninguna á heimavellinum okkar einstaka og gera Eyjarnar að stað þar sem er erfitt að koma og spila. Við þurfum stuðningsmennina og bæjarbúa með okkur í það verkefni. Mig langar að það verði aftur ákveðin upplifun fyrir lið að koma til Eyja – og helst ekki sérstaklega þægileg upplifun. Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið – hver væri það og af hverju? Ágúst Inga Óskarsson. Mér finnst hann vera leikmaður sem myndi passa mjög vel inn í ÍBV-umhverfið. Hann er tilbúinn að berjast upp á líf og dauða og það er eiginleiki sem ég kann mjög vel að meta í leikmönnum. Svo skemmir auðvitað ekki fyrir að hann er í fjölskyldunni, þannig að þetta er kannski ekki alveg hlutlaust mat hjá mér! Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum – hver yrði breytingin? Ég myndi losna við 7 á 6. Ég hef aldrei verið sérstakur aðdáandi þessarar reglu, hvorki út frá leiknum sjálfum né því sem hún gerir fyrir flæði hans. Mér finnst hún ekki hafa gert handboltann að betri íþrótt. Svo er annar þáttur sem mér finnst hafa fengið allt of litla athygli og það er öryggi markvarða. Við höfum ítrekað séð markverði koma á mikilli ferð inn á völlinn þegar lið skipta úr 7 á 6 og keyra harkalega á stöngina. Sem betur fer höfum við, svo ég viti til, ekki séð mjög alvarleg meiðsli vegna þessa ennþá. En ég óttast að það sé einfaldlega tímaspursmál. Markvörðurinn kemur oft á fullri ferð inn á völlinn, með athyglina á leiknum, skiptingunni og boltanum. Ef hann keyrir þá af fullum krafti á stöngina getur það endað mjög illa. Við eigum ekki að þurfa að bíða eftir alvarlegu slysi áður en við spyrjum hvort reglan sé þess virði. Þannig að ef ég fengi að breyta einu væri það einfalt: 7 á 6 færi út. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? Mér finnst erfitt að nefna eitt lið af einhverri sannfæringu. Ég hef einfaldlega ekki séð nógu mörg lið á undirbúningstímabilinu til að það væri sérstaklega faglegt mat. Við í Eyjum sjáum minna af æfingaleikjum liðanna á höfuðborgarsvæðinu og á móti hafa þeir væntanlega séð lítið af okkur. Þannig að menn eru að einhverju leyti að spá út frá leikmannalistum og úrslitum æfingaleikja. Mörg lið hafa tekið miklum breytingum og ungir leikmenn eru að taka við stærri hlutverkum. Ég held því að deildin verði mjög opin. Ef ég ætti samt að nefna lið sem líkleg eru til að vera í baráttunni væri eðlilegt að horfa til þeirra liða sem hafa verið sterk undanfarin ár – en ég ætla ekki að þykjast vita hver stendur uppi sem deildarmeistari áður en mótið er byrjað. Við mætum allavega til leiks með það hugarfar að við ætlum að berjast fyrir félagið okkar og sjá svo hversu langt það getur tekið okkur. Sjá einnig:
Viðtal við þjálfara karlaliðs Selfoss
Viðtal við þjálfara karlaliðs Aftureldingar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.