Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari Selfoss í Olís-deild karla Örn Þrastarson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Ég er ánægður með mjög margt hjá okkur í undirbúningnum. Við lentum í ákveðnum töfum þar sem framkvæmdir á báðum íþróttahúsum bæjarins töfðust og ekki var hægt að æfa á gólfi í bolta fyrr en 10 dögum seinna en við áætluðum. Tíminn hefur því verið knappur og strákarnir hafa þurft að taka inn mikið af upplýsingum á stuttum tíma, en þeir hafa leyst það eins vel og hægt er. Við höfum verið að prófa nýjar samsetningar í ýmsum stöðum og skoða hvernig menn passa saman. Bæði að bæta inn hlutum við það sem gekk vel sóknarlega í fyrra og svo kannski aðallega í þrista blokkinni varnarlega, en þar sem Sverrir Pálsson lagði skóna á hilluna og Gunnar Kári fór til baka úr láni þá sátum við uppi með eingöngu tvo þrista eftir í hópnum af þeim sem spiluðu það í fyrra, svo við þurftum að bregðast við þar og prófa nokkra nýja menn í það hlutverk. Æfingaleikirnir hafa nýst vel í að prófa menn inn þar, sumt gengið ágætlega, annað ekki. Við höfum verið að taka upp nýja stráka sem hafa ekki enn fengið tækifærið með meistaraflokki og gefið þeim góðan tíma í þessum undirbúning einnig. Staðan er bara ágæt. Við erum með Hannes Höskuldsson að jafna sig eftir aðgerð sem hann fór í á vinstri öxl í vor og það styttist í hann. Hákon Garri hefur einnig verið í endurhæfingu en er að byrja inni á gólfi. Aðrir hafa æft vel og eru í góðu standi. Haukur Páll hefur einnig verið að glíma við meiðsli, en hann er kominn með ágætis reynslu af þessu og með rödd í klefanum og við erum að vona að hann detti inn í þetta fljótlega líka. Við erum með ágætis breidd í flestum stöðum og ég er bara nokkur sáttur við stöðuna. Það urðu frekar litlar breytingar hjá okkur. Sverrir Pálsson er vissulega hættur og það er skarð að fylla. Síðustu árin hefur hann þó verið talsvert frá vegna meiðsla og hlutverkið orðið minna með árunum svo það var kannski ekki óvænt og við gefum yngri leikmönnum tækifæri þar. Gunnar Kári fór svo til baka úr láni, reyndar aðeins fyrir lokin á síðasta tímabili, en hann spilaði mjög vel eftir áramót í vörn og sókn og það hefði verið gott að hafa hann áfram, en línumennirnir okkar hafa lagt gríðarlega mikið á sig í sumar og þeir eru í virkilega góðu standi, línuspilið verið gott á undirbúningstímabilinu svo ég held að við séum bara í ágætis málum þar. Svo höfum við tekið upp nokkra unga leikmenn í æfingahóp sem eru strax byrjaðir að þrýsta á þá sem fyrir voru og þeir koma með góða dýnamík inní þetta og auka bæði breidd og æfinga gæði. Við munum örugglega lenda í sveiflum í okkar leik, í það minnsta til að byrja með en vonandi mun það skána jafnt og þétt. Við ætlum að vera með mjög unga leikmenn í einhverjum hlutverkum og þeir þurfa eðlilega að fá sinn tíma til að aðlagast. Það er svo ekkert leyndarmál að liðið fékk á sig töluvert mikið af mörkum í fyrra og það mun vera góð áskorun fyrir okkur að vinna í því að ná þeim tölum niður. Ég er bjartsýnn að eðlisfari og hef fulla trú á strákunum. Við ætlum okkur að gera betur enn í fyrra en gerum okkur grein fyrir því að það verður barátta og við teljum okkur klára í þann slag. Ég er mjög spenntur að sjá ungu strákana koma inn í þetta hjá okkur og fá sína eldskírn og sjá svo hvað gerist hjá þeim í framhaldinu. Margir með mjög hátt þak. Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju? Darri Aronsson. Í fyrsta lagi er hann frábær þristur og sterk skytta og ekki skemmir það svo fyrir að við erum systrasynir. Hætta að leyfa bara einum að standa á bekk. Haukar Sjá einnig:
Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu?
Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót?
Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar?
Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur?
Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins?
Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu?
Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?
Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.