Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla Hrannar Guðmundsson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Já við erum bara ánægðir með undirbúningstímabilið hingað til. Við höfum verið heppnir með meiðsli og hafa flestir bara tekið 100% þátt í öllu undirbúningstímabilinu. Staðan er bara góð, það eru allir heilir nema Þorvaldur eins og er. En við vonum að hann verði klár fyrir fyrsta leik. Við erum sáttir með þessar breytingar sem við höfum gert. Hákon hefur komið sterkur inn hjá okkur ekki bara í meistaraflokkinn heldur einnig inn í þjálfunina í yngri flokkunum. Einnig gefur Hans Jörgen okkur mikla skot ógn að utan og getur hann leyst allar stöður fyrir utan hjá okkur sóknar og varnarlega. Helsta áskorunin verður að ná stöðugleika í okkar leik og byggja upp sterka liðsheild. Við erum með spennandi hóp og mikla möguleika. Við erum með samheldin hóp og menn eru mjög duglegir og tilbúnir að gefa mikið í þetta sem mun koma okkur langt. Við ætlum okkur klárlega að vera í baráttunni um 4-5 efstu sætin í deildinni. Við erum með mjög skemmtilegt lið og mjög unga stráka sem við viljum sjá taka næsta skref. Við þurfum líka bara að taka einn leik fyrir í einu og einbeita okkur að sjálfum okkur að bæta okkur sem einstaklingar og lið. Ég er bara mjög spenntur fyrir þessu tímabili hversu jöfn deildin verður. Ég reikna með því að þetta verði mjög jafnt alveg þangað til í nýja fyrirkomulagið í úrslitakeppninni. Einnig er alltaf gaman að fylgjast með yngri leikmönnunum og sjá hverjir muna taka næstu skref. Freyr Aronsson – frábær leikmaður sem getur náð hrikalega langt. Getur spilað allar stöður fyrir utan og er einnig frábær varnarmaður Ég væri bara alveg til í að prufa skotklukku – veit ekki alveg útfærsluna en allt í lagi að prufa. Haukar eða Valur
Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu?
Við höfum verið að lyfta frekar mikið núna á undirbúningstímabilinu og höfum lagt mikla áherslu á það. Við tókum inn nýjan styrktarþjálfara sem er kominn bara í fullt starf hjá félaginu og erum að setja meira púður í það.
Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót?
Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar?
Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur?
Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins?
Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu?
Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju?
Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?
Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.