Víkingur sendir frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðun félagsins
Emma Elísa Jónsdóttir

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur sent frá sér tilkynningu varðandi ákvörðun handknattleiksdeildar Víkings að draga lið sitt úr keppni í Olís-deild kvenna rúmlega viku áður en liðið átti að mæta, Íslands, deildar- og bikarmeisturum Vals í 1.umferð deildarinnar.

Víkingur endaði í 3.sæti Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð en fékk sæti í Olís-deild kvenna vegna fjölgunar liða í Olís-deild kvenna úr átta liðum í tíu fyrir komandi tímabil.

Liðið þáði það boð allt þar til í dag, þegar stjórn handknattleiksdeildar Víkings óskaði eftir því við HSÍ að kvennalið félagsins myndi frekar spila í Grill66-deild kvenna í vetur.

Kvennalið Selfoss hefur tekið sæti Víkings í Olís-deildinni en liðið endaði í 8. og neðsta sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Tilkynninguna má sjá hér að neðan:

Á fundi stjórnar handknattleiksdeildar Víkings var samþykkt að óska eftir því við HSÍ að lið meistaraflokks kvenna í handbolta fengi sæti í Grill 66 deild kvenna á komandi tímabili. Beiðni Víkings hefur nú verið samþykkt af hálfu HSÍ.

Það er einróma afstaða stjórnar handknattleiksdeildar að það samræmist betur metnaðarfullri vegferð félagsins að ungt lið meistaraflokks kvenna leiki í Grill 66 deild kvenna tímabilið 2026/2027. Lið Víkings samanstendur af ungum og efnilegum leikmönnum sem eru um leið metnaðarfullir og láta hag og framgang meistaraflokks kvenna sig mikið varða. Liðið er á spennandi en krefjandi stað í uppbyggingu sinni og er félaginu annt um að tryggja veg og vanda liðsins sem best, bæði innan vallar sem utan. Á sama tíma er mikill vöxtur í yngri flokka starfi Víkings, bæði hjá strákum og stúlkum, en iðkendur er nú um 550 talsins. Því er gríðarlega mikilvægt að vel sé haldið utan um uppbyggingu handboltastarfs í félaginu og er það trú handknattleiksdeildar að þessi niðurstaða sé best til þess fallin að byggja áfram upp öflugt handboltastarf í félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top