Selfoss tekur sæti Víkings í Olís-deild kvenna
Sævar Jónasson

Það voru heldur betur stórtíðindi að berast úr íslenska kvennaboltanum nú rétt rúmlega viku fyrir Íslandsmótið en kvennalið Víkings hefur dregið lið sitt úr keppni í Olís-deildinni en liðið endaði í 3.sæti Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Þar sem fjölgað var í Olís-deild kvenna úr átta liðum í tíu fékk Víkingur boð um sæti í Olís-deild kvenna sem það þáði. Selfoss hinsvegar endaði neðstar í 8 liða Olís-deild á síðustu leiktíð og féll niður Í Grill66-deildina.

Víkingur dregur lið sitt úr keppni

Nú hafa hinsvegar orðið breytingar á og hefur Selfoss ákveðið að þiggja sæti í Olís-deildinni sem því var boðið fyrr í dag. Þetta tilkynnir Selfoss í fréttatilkynningu nú rétt í þessu.

,,Síðdegis í dag barst boð frá HSÍ til Selfoss þar sem meistaraflokki kvenna var boðið sæti í Olísdeild kvenna. Eftir samráð við leikmannahópinn og þjálfara hefur Handknattleiksdeildin ákveðið að taka sætið. Spennandi vetur er framundan hjá liðinu og hvetjum við stuðningsmenn og samstarfsaðila til að flykkja sér að baki liðinu," segir í tilkynningunni frá Selfossi.

Eva Hrund hætt með kvennalið Víkings

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top