Allir 18 leikmenn íslenska kvennalandsliðsins eru á leikskýrslu þegar Ísland mætir Svíþjóð í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem fram fer í Malmö í dag. Flautað verður til leiks klukkan 17:15 og verður leikurinn í beinni útsendingu á RÚV 2. Leikurinn er sá fyrri af tveimur gegn Svíum í lokaundirbúningi Íslands fyrir EM. Liðin mætast aftur í Halmstad á laugardag klukkan 16:15. Fyrsti leikur Íslands á EM er gegn Slóveníu í Oradea fimmtudaginn 3. desember. Alexandra Líf Arnarsdóttir var kölluð inn í leikmannahóp Íslands í gær og er mætt til Malmö. Bæði Katrín Tinna Jensdóttir og Elísa Elíasdóttir hafa verið að glíma við meiðsli. Hópur Íslands gegn Svíþjóð:
Hafdís Renötudóttir Valur 82/5
Sara Sif Helgadóttir Haukar 27/0
Alexandra Líf Arnarsdóttir Haukar 7/3
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Thüringer HC 18/11
Díana Dögg Magnúsdóttir Blomberg-Lippe 77/104
Elín Klara Þorkelsdóttir IK Sävehof 39/165
Elín Rósa Magnúsdóttir Blomberg-Lippe 44/93
Elísa Elíasdóttir Valur 35/34
Katrín Anna Ásmundsdóttir Fram 26/42
Katrín Tinna Jensdóttir HH Elite 39/48
Lilja Ágústsdóttir Sachsen Zwickau 29/24
Lovísa Thompson Benfica 43/79
Matthildur Lilja Jónsdóttir ÍR 13/1
Rakel Oddný Guðmundsdóttir Haukar 16/19
Sandra Erlingsdóttir ÍBV 51/212
Sara Dögg Hjaltadóttir ÍR 9/13
Sonja Lind Sigsteinsdóttir Haukar 9/8
Thea Imani Sturludóttir SCM Craiova 100/233

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.