Giorgi Dikhaminjia stefnir á að snúa aftur á völlinn með KA á seinni hluta febrúar. Hann hefur glímt við erfið hnémeiðsli undanfarna mánuði og hefur ekkert leikið með liðinu á tímabilinu. Giorgi gekk í raðir KA fyrir síðustu leiktíð og var einn af betri leikmönnum liðsins áður en hann meiddist í landsliðsverkefni með Georgíu fyrr á þessu ári. „Allt gengur samkvæmt áætlun og mér líður miklu betur. Ef batinn heldur áfram á sama hraða og engir frekari fylgikvillar koma upp fæ ég grænt ljós á að byrja að skokka um miðjan janúar. Við gerum ráð fyrir að ég geti byrjað að spila aftur á seinni hluta febrúar,“ sagði Giorgi. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, sagði í viðtali við Livey fyrir nágrannaslag KA og Þórs um helgina að hann byggist við að fá Giorgi aftur eftir áramót. KA er í 3.sæti Olís-deildarinnar eftir ellefu umferðir eftir fimm marka sigur gegn Þór um helgina. KA fær HK í heimsókn í fyrsta leik 12.umferðarinnar í kvöld klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.