Gæti brottfall úr Meistaradeildinni hentað Füchse Berlin betur?
Fuchse Berlín)

Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, hefur viðrað athyglisverða hugmynd varðandi framhald liðsins í Meistaradeild Evrópu. Hann telur að það gæti jafnvel verið hagstæðara fyrir félagið að enda í fimmta sæti milliriðilsins og fara yfir í Evrópudeildina.

Füchse Berlin tekur á móti MT Melsungen í Max-Schmeling-Halle á fimmtudaginn í öðrum leik sínum í milliriðli Meistaradeildarinnar.

Berlínarliðið situr í sjötta og neðsta sæti riðilsins án stiga en þarf að enda í að minnsta kosti fjórða sæti til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar.

Bob Hanning viðraði hins vegar aðra hugmynd á blaðamannafundi í síðustu viku.

„Það mætti velta því fyrir sér hvort okkar besta leið til að spila aftur í Meistaradeildinni á næsta tímabili væri að enda í fimmta sæti og fara í Evrópudeildina. Sem framkvæmdastjóri má ég ekki segja þetta en ég hugsa stundum um það,“ sagði Hanning.

Ef Füchse Berlin endar í fimmta sæti milliriðilsins færist liðið yfir í sextán liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Með því að vinna Evrópudeildina myndi Berlínarliðið tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeildinni á næsta tímabili, rétt eins og MT Melsungen gerði á síðasta tímabili.

Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlin, vill hins vegar ekki velta þessum möguleika of mikið fyrir sér að svo stöddu.

„Við erum ekki komin á þann stað. Við eigum enn sjö leiki eftir og þegar upp er staðið þurfum við aðeins að vera með tveimur stigum meira en tvö önnur lið. Við höfum enn trú á því að okkur takist það,“ sagði danski þjálfarinn.

Endi Füchse Berlin í þriðja eða fjórða sæti milliriðilsins gæti liðið hins vegar þurft að mæta annaðhvort SC Magdeburg eða Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Fuchse Berlín mætir MT Melsungen í Meistaradeildinni í kvöld klukkan 19:45 en Melsungen er í 4.sæti riðilsins með tvö stig á meðan Berlínarliðið er án stiga á botni riðilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top