Valið á Stiven kom mönnum á óvart
Beautiful Sports / Orange Pictures / AFP

Valið á Stiven Tobar Valencia á 35 manna lista Íslands fyrir heimsmeistaramótið í janúar kom þáttastjórnendum Handkastsins á óvart. Valsmaðurinn er nýbyrjaður að spila á ný eftir meiðsli og í þættinum veltu þeir fyrir sér hvort Össur Haraldsson, sem hefur átt frábært tímabil með toppliði Hauka, hefði átt að fá tækifærið.

„Annað nafn sem kom á óvart að væri á 35 manna listanum, talandi um meiðsli, er Stiven Tobar Valencia. Hann er mættur á listann eftir að hafa spilað 30 mínútur á meira en hálfu ári,“ sagði Stymmi klippari. Kristinn Björgúlfsson sagðist hafa búist við að Össur yrði á listanum í ljósi elítuæfinga landsliðsins á dögunum.

„Maður reiknaði með því. Ég sá aldrei fyrir mér að Stiven yrði í þessum hóp,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson. Hann benti á að sæti á 35 manna listanum gæti verið viðurkenning fyrir góða frammistöðu, jafnvel þótt leikmaðurinn kæmist ekki í lokahópinn. „Þetta er hrós fyrir góða frammistöðu. Það á við um Frey Aronsson og Gunnar Róbertsson. Það er verið að klappa þeim á bakið og hrósa þeim fyrir góða frammistöðu.“

Einar Ingi hefði viljað sjá Össur fá sams konar viðurkenningu fyrir frammistöðu sína með Haukum í vetur. Að hans mati hefði sæti á listanum getað verið hvatning fyrir Össur til að taka næsta skref.

Stiven Tobar Valencia gekk á dögunum í raðir Vals eftir þriggja ára dvöl í Portúgal. Stiven fór í axlaraðgerð snemma í sumar en er snúinn aftur og lék sinn fyrsta leik með Val í síðustu viku í Evrópudeildinni gegn Tatabanya. Hann var einnig í eldlínunni með Val gegn Mors-Thy í vikunni.

Frekar var rætt um 35 manna listann í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem rætt var um fjarveru Einars Braga Aðalsteinssonar meðal annars.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top