Þórsarar hafa tapað sjö af síðustu átta leikjum sínum í Olís-deild karla. Um helgina tapaði liðið 35–30 fyrir KA á heimavelli í nágrannaslagnum þrátt fyrir að hafa verið yfir í hálfleik. Gengi Þórs var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari og Kristinn Björgúlfsson veltu fyrir sér hvers vegna liðið hefði gefið eftir eftir góða byrjun. „Þór er í 10. sæti deildarinnar með sex stig og bara fimm stigum frá neðsta sætinu. Þetta hljóta að vera vonbrigði miðað við hvað hefur verið lagt í liðið. Þeir byrjuðu tímabilið nefnilega vel,“ sagði Stymmi. „Þeir hafa ekki unnið leik í mánuð,“ bætti Kristinn við en síðasti deildarsigur Þórs kom gegn Stjörnunni 21. október. Kristinn sagði að væntingar til Þórs hefðu meðal annars byggst á aukinni breidd í leikmannahópnum. Honum þætti því áhyggjuefni að liðið væri aðeins einu sæti ofar en HK, sem á leik inni og hefur lent í töluverðum áföllum. „Þór á að vera með meiri breidd en Víkingur og Stjarnan og maður hefði haldið að Þórsararnir væru á betri stað en þeir eru. Það er áhyggjuefni,“ sagði Kristinn. Þór fær Fram í heimsókn í kvöld klukkan 19.00. Fjórum stigum munar á liðunum en Framarar eru í 6. sæti með tíu stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.