Sjáðu brotið sem Ísak Logi fékk tveggja leikja bann fyrir
Sævar Jónasson

Stjarnan verður án síns besta leikmanns á tímabilinu, Ísaks Loga Einarssonar í næstu tveimur leikjum í Olís-deildinni eftir að hann var úrskurðaður í tveggja leikja bann eftir ljótt brot snemma í leik liðsins gegn Selfossi í síðustu umferð.

Ísak Logi missir þar af leiðandi af leik Stjörnunnar gegn FH á heimavelli á laugardaginn og þá missir hann af leiknum gegn Haukum á útivelli í 13.umferðinni.

Ísak Logi í tveggja leikja bann – Bragi Rúnar í þriggja leikja bann

Það verður skarð fyrir skyldi fyrir Stjörnuna sem situr í 8.sæti deildarinnar með sex stig en FH og Haukar eru í tveimur efstu sætum deildarinnar.

Ísak Logi er lang markahæsti leikmaður Stjörnunnar með 102 mörk en Gauti Gunnarsson kemur næstur með 49 mörk. Hér að neðan má sjá brotið í leiknum gegn Selfossi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top