Danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen er af mörgum talinn besti markvörður heims en þegar litið er til tölfræðinnar í Meistaradeild Evrópu á yfirstandandi tímabili er einn markvörður sem hefur gert enn betur. Emil Nielsen átti stórkostlegan leik þegar Veszprém vann 37–26 útisigur á Partizan Belgrad í byrjun október. Danski landsliðsmarkvörðurinn varði þá 24 skot og var með 48% markvörslu. Xavi Pascual, þjálfari Veszprém, hrósaði markverði sínum í hástert á blaðamannafundi eftir leikinn. „Ég get sagt ykkur það að Emil Nielsen er besti markvörður heims. Það vita allir. Það er frábært fyrir okkur að hafa hann og ég yrði mjög ánægður ef hann yrði hjá okkur í mörg ár til viðbótar,“ sagði Pascual. Nielsen hefur varið 82 skot í sjö leikjum í Meistaradeildinni á tímabilinu og er með 35,19% markvörslu. Það dugir honum þó aðeins í annað sæti á lista yfir þá markverði sem eru með hæsta hlutfallsmarkvörslu í keppninni. Spænski markvörðurinn Sergey Hernández, sem tók við af Nielsen hjá Barcelona síðastliðið sumar, trónir á toppi listans. Hernández, sem áður lék með Magdeburg, hefur varið 94 skot í sjö leikjum fyrir Barcelona og er með 37,60% markvörslu. Hann hefur því varið tólf skotum meira en Nielsen og er með 2,41 prósentustigi hærri hlutfallsmarkvörslu. Handball-World telur að þeir Hernández og Nielsen myndi ásamt þýska landsliðsmarkverðinum Andreas Wolff hóp þriggja bestu markvarða heims um þessar mundir. Miðað er við hlutfallsmarkvörslu þeirra markvarða sem hafa varið að minnsta kosti 30 skot í keppninni.Tíu bestu markverðir Meistaradeildarinnar:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.