Eva Hrund Harðardóttir sem var ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking í sumar er hætt störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Víking nú í kvöld. Eva Hrund óskaði eftir því að stíga til hliðar af persónulegum ástæðum. Gísli Steinar Jónsson, sem var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins í sumar, tekur tímabundið við sem aðalþjálfari liðsins. "Handknattleiksdeild Víkings óskar Evu alls hins besta og þakkar fyrir gott samstarf" segir í tilkynningunni frá Víking.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.