Íslenski landsliðsmaðurinn, Óðinn Þór Ríkharðsson var óstöðvandi í hægra horni Kadetten Schaffhausen í svissnesku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Óðinn gerði sér lítið fyrir og skoraði tólf mörk úr tólf skotum í sex marka sigri liðsins gegn Bern á útivelli, 30-24. Kadetten Schaffhausen voru sjö mörkum yfir í hálfleik 15-8 og voru með yfirburði í leiknum allan leikinn. Þetta er í sjötta sinn á tímabilinu sem Óðinn skorar tíu mörk eða meira í svissnesku deildinni í vetur.
Félagið hefur nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn en Kadetten urðu bikarmeistarar fyrr á tímabilinu. Ein umferð er eftir af tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.