
Austurríski landsliðslínumaðurinn, Tobias Wagner skiptir um félag í sumar. Samkvæmt Handball-World mun hinn 31 árs gamli línumaður skipta til serbneska félagsins RK Partizan Belgrad í sumar, þar sem markmiðið er að komast á meðal sterkustu liða Evrópu. RK Partizan tók þátt í Evrópudeildinni á þessu tímabili en féll úr leik eftir riðlakeppnina. Metnaður félagsins nær þó lengra og stefnan er sett á að ná betri árangri í Evrópu. Tobias Wagner gengur í raðir Partizan frá Limoges í Frakklandi þar sem hann var eitt tímabil en hann hefur verið á faraldsfæti á ferlinum undanfarin ár. Þar áður var hann eitt tímabil hjá Erlangen tímabilið 2024-2025. Þá lék hann í heimalandinu þar áður með Bregenz. „Ég hef spilað nánast allt sem hægt er sem handboltamaður, og hjá Partizan fæ ég möguleika á að spila í Meistaradeildinni,“ segir Wagner um ákvörðunina en á næstu leiktíð fjölgar liðum í Meistaradeildinni og gera stjórnarmenn Partizan sér vonir um að félagið vinni sér sæti í Meistaradeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.