
HC Oppenweiler/Backnang tapaði í dag með átta mörkum gegn toppliði þýsku B-deildarinnar, Balingen 34-26 eftir að staðan hafi verið 19-13 Balingen í vil í hálfleik. Tjörvi Týr Gíslason nýtti öll þrjú skot sín í leiknum en hann var þriðji markahæsti leikmaður Oppenweiler/Backnang í leiknum en Malte Dedering var markahæstur með ellefu mörk úr 21 skoti. Um var að ræða 21. tap liðsins í röð í þýsku B-deildinni en liðið er á botni deildarinnar með tvö stig eftir 26 umferðir. Átta umferðir eru eftir af deildarkeppninni en tvö neðstu lið þýsku B-deildarinnar falla niður í C-deild. Þrettán stig eru í Essen sem eru í 16.sæti deildarinnar með 15 stig en sextán stig eru í pottinum og því er liðið ekki enn fallið tölfræðilega.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.