Haukur Þrastarson leikmaður Rhein-Neckar Löwen er aðra umferðina í röð í liði umferðarinnar í þýsku úrvalsdeildinni. 27. umferðin lauk um helgina en þrátt fyrir tap er Haukur í liði umferðarinnar. Rhein-Neckar Löwen tapaði með tveimur mörkum gegn Íslendingaliðinu HC Erlangen, 29-27. Haukar skoraði átta mörk og gaf níu stoðsendingar í leiknum. Haukur var einnig í liði 26.umferðar í þýsku úrvalsdeildinni en hann skoraði þá 15 mörk í 18 skotum og gaf átta stoðsendingar í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen á HSG Wetzlar 41-27. Hér að neðan er hægt að sjá lið 27.umferðar í þýsku úrvalsdeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.