15 marka sigur Stjörnunnar í fyrsta leik úrslitaeinvígisins
Sævar Jónasson)

Í kvöld mættust Stjarnan og Hörður í fyrsta leik úrslitaeinvígis umspils um sæti í Olís deildinni. Leikið var í Garðabæ.

Stjörnumenn byrjuðu strax mun betur. Þeir komust fljótt í 5-1 og svo 10-5 eftir rúmt korter. Áfram hélt þetta á þessum nótum út fyrri hálfleikinn og var munurinn alltaf 4-6 mörk. 16-10 voru hálfleikstölur. Stjarnan einfaldlega tveimum skrefum framar allan fyrri hálfleikinn. Harðverjar voru hins vegar engan veginn að finna sig og það var eins og þeim skorti tiltrú.

Stjörnumenn voru ekkert á þeim buxunum að slaka á í seinni hálfleik því eftir 10 mínútna leik í seinni hálfleik þá var staðan orðin 22-12 og leikurinn nánast búinn. Þegar 10 mín voru eftir þá var staðan orðin 28-18 og lokatölur urðu síðan 35-20.

Þessi sigur var aldrei í hættu hjá Stjörnunni og þeir gætu ekki hafa beðið um betri byrjun á einvíginu. Harðverjar komust hinsvegar aldrei í takt í þessum leik og nokkuð ljóst að þeir þurfa að mæta mun betur til leiks á laugardaginn næstkomandi þegar leikur 2 í einvíginu fer fram á Ísafirði.

Hjá Stjörnunni var Sigurður Dan frábær í markinu með 19 varða bolta. Ísak Logi Einarsson var markahæstur með 6 mörk.

Hjá Herði voru markmennirnir Stefán og Hermann með samtals 10 bolta varða. Guilherme Di Andrade skoraði 8 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top