Óðinn Þór með sex mörk í fyrsta leik úrslitakeppninnar
JOHAN NILSSON / AFP

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk þar af þrjú af vítalínunni í fjögurra marka sigri Kadetten Schaffhausen gegn Amicitia Zurich í fyrsta leik úrslitakeppninnar í Sviss í kvöld.

Kadetten vann leikinn 32-28 sem fram fór á heimavelli en staðan var 17-12 heimamönnum í vil í hálfleik um var að ræða fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum en vinna þarf þrjá leiki í einvíginu til að komast áfram í undanúrslit.

Schaffhausen hafa orðið svissneskir meistarar fjögur ár í röð og enduðu í efsta sæti deildarinnar á meðan Zurich endaði í 8.sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top