Nýtt ofurlið í Evrópu í bígerð?
Swen Pförtner / AFP

Serbnesku meistarnir í Partizan sitja í 2.sæti Arkus-Liga í Serbíu með jafn mörg stig og toppliðið Vojvodina hafa heldur betur styrkt sig með sterkum leikmönnum fyrir næstu leiktíð. Eftir ellefu ára einokun á serbneska meistaratitlinum varð Vojvodina að sætta sig við annað sætið á síðustu leiktíð.

Við greindum frá því á dögunum að austurríski landsliðs-línumaðurinn Tobias Wagner hafi gengið í raðir Partizan.

Liðið hefur einnig klófest í Hvít-Rússann Uladzislau Kulesh frá MT Melsungen, Serbann Milos Kos frá HC Erlangen, Lumbroso frá Dinamo Bucuresti.

Þá hafa þeir einnig fengið Serbann Illja Abutovic frá Eurofarm Pelister og Spánverjann Miguel Sanchez-Migallon frá Benfica.

Þá verða þjálfarabreytingar á liðinu í sumar en Spánverjinn, Raúl González sem stýrir serbneska landsliðinu tekur við liðinu í sumar en hann þjálfaði Paris Saint Germain frá 2018-2025 og þar áður Vardar í Norður-Makedóníu.

Gera má ráð fyrir því að Partizan sækist eftir því að fá sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top