
Samkvæmt Handballbase og RThandball hefur SG Flensburg-Handewitt náð samkomulagi við portúgalska örvhentu skyttuna Francisco „Kiko“ Costa um að hann gangi til liðs við félagið sumarið 2027 á sama tíma og Viggó Kristjánsson gengur í raðir félagsins. Orðrómur hafði verið á kreiki um að öll Costa-fjölskyldan gæti flutt til Flensburg, þar á meðal faðir hans og bróðir Kiko Costa, Martim Costa. Hins vegar hefur að svo stöddu aðeins verið gengið frá samningi Kiko Costa. Faðir hans, Ricardo Costa, hefur að sögn hafnað þýska stórliðinu, á meðan viðræður standa enn yfir um mögulegan félagaskipti Francisco og Martim Costa. Samkvæmt heimildum Handkastsins er tímaspursmál hvenær Martim Costa gangi í raðir Flensburg en það strandar á félögunum að ná samkomulagi um kaupverð. Það stefnir því allt í það að landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson fái alvöru samkeppni hjá Flensburg þegar hann kemur til félagsins sumarið 2027. Costa bræðurnir hafa gert það gott bæði með Sporting og portúgalska landsliðinu undanfarin stórmót. Voru þeir bræður lengi vel orðaðir við Barcelona.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.