
Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach halda áfram frábæru gengi sínu í þýsku deildinni en þeir tóku á móti Wetzlar í kvöld. Þjálfari Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson. Hann náði þó ekki að stríða landa sínum og unnu Gummersbach með öruggan átta marka sigur, 32-24. Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson eitt. Ludvik Hallback var markahæstur í liði heimamanna með 9 mörk en hjá Wetzlar skoraði Nafea Ahmed 5 mörk. Gummersbach sitja í 4.sæti deildarinnar eftir sigurinn en Wetzlar eru ennþá í næst neðsta sæti deildinnar, einu stigi frá öruggu sæti. Í síðari leik dagsins tóku Haukar Þrastarson og félagar í Rhein Neckar Löwen á móti Flensburg. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Flensburg, 33-36 eftir að staðan í hálfleik var 18-18. Jannik Kohlbacher var markahæstur í liði heimamanna með 9 mörk en hjá Flensburg var Lasse Möller markahæstur með 9 mörk einnig. Haukur Þrastarson skoraði 7 mörk í kvöld og gaf 10 stoðsendingar. Flensburg eru áfram í 2.sæti eftir sigurinn en Rhein Neckar Löwen eru í 8.sæti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.