Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu 35-26 sigur í gær á GC Amicitia Zürich. Þetta var annar leikur liðanna í átta liða úrslitum og hefur Kadetten unnið báða leikina. Óðinn Þór fór á kostum í leiknum í gær og skoraði 11 mörk í öruggum sigri. Liðin leika aftur á miðvikudaginn og getur Kadetten með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.