Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sæti inn á fjórða stórmótið í röð eftir átta marka sigur á Portúgal í dag 32-24. Ljóst var fyrir leikinn að Ísland þurfti tveggja marka sigur og um miðbik seinni hálfleiks var það ljóst að markmiðinu yrði náð. Íslenska liðið átti hinsvegar erfiða byrjun í leiknum og komst Portúgal í 5-1 í upphafi leiks. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst í liði Íslands með sjö mörk í leiknum í dag og var í skýjunum með að vera búinn að tryggja Íslandi sæti á EM í lok árs. ,,Það var eins og það hafi verið eitthvað smá stress í byrjun en við náðum að hrista það af okkur og spiluðum síðan frábæra vörn og vorum að vinna boltann og keyra í bakið á þeim, nákvæmlega planið okkar fyrir leikinn. Það var geggjað og virkaði vel." Arnar Pétursson fór í 5-1 vörn í stöðunni 10-12 fyrir Portúgal og það mætti segja að leikurinn hafi snerist í kjölfarið. ,,Við erum einhvernveginn alltaf klárar með 5-1 vörnina fyrir alla leiki og hann var aðeins búinn að tala um það rétt fyrir leik. Við vorum klárar í það og það virkaði vel gegn þeim." Íslenska liðið tapaði illa gegn Færeyjum í vikunni og var því með bakið upp við vegg fyrir leikinn í dag. ,,Það tók alveg tvo daga að ná þeim leik úr sér og það var ótrúlega svekkjandi en ég held að það hafi líka verið smá extra boozt fyrir þennan leik og við mættum brjálaðar eftir fyrsta korterið og gerðum þetta ótrúlega vel." ,,Þessi stórmót eru svo geggjuð og gefa okkur svo ótrúlega mikið. Það er mikill stígandi í liðinu og það er frábært að við höfum náð þessu og ég er ótrúlega stolt af liðinu. Eins vil ég hrósa stuðningsmönnunum, þau voru frábær í dag," sagði Elín Klara að lokum í samtali við Handkastið eftir leikinn. Elín Klara er leikmaður Savehof í Svíþjóð á sínu fyrsta tímabili og núna bíður hennar úrslitakeppnin í Svíþjóð þar sem Savehof er 2-0 yfir í einvígi sínu í 8-liða úrslitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.