
Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach gerðu góða ferð til Leipzig í gærkvöldi og unnu sex marka sigur á heimamönnum, 31-37 eftir mikla yfirburði í fyrri hálfleik þar sem Gummersbach leiddi í hálfleik 21-12. Blær Hinriksson var markahæstur í liði Leipzig með fimm mörk ásamt Lukas Binder og Tomas Piroch. Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú en þetta var ellefti sigur Gummersbach í deildinni í röð og er liðið einungis tveimur stigum á eftir Flensburg sem er í 2.sæti deildarinnar. Staðan er hinsvegar öllu verri hjá Leipzig sem sitja sem fastast á botni deildarinnar með 10 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Liðið hefur ekki unnið leik í síðustu átta leikjum sínum í deildinni en einungis sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Ludvig Hallback var markahæstur í leiknum með átta mörk og Miro Schluroff kom næstur með sex mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.